blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

1.13.2005

Hálft snapp en annars bara í góð

Íbúðin er orðin tóm.. Kom fullt af fólki í gær og við hentum öllu út á kerru... nú eru bara svona 2 dagar eftir í niðurrifi áður en uppbygging getur hafist!! Svo kætandi!!!! Loksins fórum við beyglurnar í skvass í gær.. eftir 2 vikna pásu og sökuðar að minni hálfu eftir hinni beyglunni minni! Það var ekkert smá gott og gaman... fékk helling af karlhormónaköstum og tapaði öllum leikjum nema einum... Mest ljómandi losun á orku!! Gengur bara fínt að klára ritgerðar uppkastið... með meðfylgjandi njálgi að sjálfsögðu.. en það telst víst eðlilegt innan gæsalappa. Og.. ú ú ú!!! Var að fá nýtt lyklaborð :) komin með svona beygluborð ! sem sagt svona natural ! Það er hrikalega flott og mest ljomandi að skrifa á það!! Annars hef ég komist að þeirri niðurstöðu í dag að veðrið hlítur að vera andsetið! Það er svo kalt að þetta er ekki nokkurri konu bjóðandi. Fór á miðbæjarrölt í hádeginu og tók út stressið sem var alveg að fara að hellast yfir mig.... gott að skipta um umhverfi í smá tíma....
Svo fyrir ykkur sem hafa endalausan áhuga á vindmyllum og möguleikum þeirra að eiga líf hér á landi þá eru gögnin min komin á netið http://os.is/page/gagnavefsja þekjan heitir vindatlas, zooma þarf að mælinum sem er merktur. ýta svo á i takkann vinsra megin og smella á stöðina. þá byrtist uppl dálkur fyrir neðan... síðan undir stöðvarnúmerinu eru htlm síður með upp.. reglulega kætandi og skemmtilegt ;)
Annars er ofvirki iðnaðarmaðurinn enn laus og stendur sig eins og við mátti búast... allt er að gerast og hann er svakalega ánægður :P

1 Comments:

Blogger Kiddý said...

hæ frænka, íbúðin lofar góðu. ég keypti voða indverskt fyrir þig á veggina. sem þú færð um leið og ég sendi þær blessaðar gjafir... en málið er að ég þarf að fara inn í dehli til að fá afslátt á kostnaðinum og hef ekki komið mér í það vegna veikinda. Ennn nú er konan orðin hraust og ég sendi pakkana sem fyrst. P,s þú verður að sjá til þess að það verða haldin eftirá jól þegar varningurinn kemur í hús. Love kiddy

5:09 AM

 

Post a Comment

<< Home